Á Miðnesheiði bandariskur „basi" er
Búinn að vera í rúm tuttugu ár
Ódámur þessi er langt því frá að leika sér
Ijúkið upp augunum, horfið hann á
Þetta er herinn sem byssustyngjum beinir að
Börnum og konum og vopnlausum lýð
Með pyntingum, morðum og meinsærum hann reynir að
Magna upp ófrið og heimsvaldastríð
Ísland úr NATO — ísland úr NATO
Ísland úr NATO og herinn á brott
Látum því kröfuna enduróma um landið allt
Ísland úr NATO og herinn á brott
Ýmist í harðvítugri samkeppni eða samráði
Við sovéska björninn hann eltir sitt skinn
Þeir bítast um gróðann af alþýðunnar erfiði
Annar er feigur en dauðinn á hinn
Með aðild að NATO er Island komið klafann á
Sem kúgarinn reyrir um þjóðanna háls
Það skuldbindur okkur til að styrkja bæði og styðja
Þá sem stríða gegn heimi er vill verða frjáls
Ísland úr NATO — ísland úr NATO
Ísland úr NATO og herinn á brott
Látum því kröfuna enduróma um landið allt
Ísland úr NATO og herinn á brott
Hérlendis ríkir með ógnarstjórn og arðráni
Hinn íslenski aðall, vor borgarastétt
Þess vegna er auðmýkt og þýlyndi vor þjóðfáni
Þess vegna á fólkið engan sjálfráðarétt
Þrátt fyrir napalm, gerlavopn og gaddavír
Geislavirkar sprengjur og óvígan her
Bandaríska heimsveldið undanhald sitt undirbýr
En alþýðan sigrandi um veröldina fer
Ísland úr NATO — ísland úr NATO
Ísland úr NATO og herinn á brott
Látum því kröfuna enduróma um landið allt
Ísland úr NATO og herinn á brott
JÁ!
Ísland úr NATO — ísland úr NATO
Ísland úr NATO og herinn á brott
Látum því kröfuna enduróma um landið allt
Ísland úr NATO og herinn á brott
all Eirkur Ellertsson songs all songs from 1879