LazyTown — Aha sei-sei já-já

[Verse 1] Eiga hanar nokkurn tímann egg? Nei nei Eru hljóðin í kúnum kölluð hnegg? Nei nei Eru Breiðhyltingar breiðleitir Og Rangæingar rangeygðir? Nei nei, sei sei, já já [Verse 2] Eru kisur alveg hárrauðar? Nei nei Eru fermingar í febrúar? Nei nei Jú, rangt er ykkar svar í svip Því sífellt eru fermd hér skip Aha, sei sei, já já [Verse 3] Hlíða krakkarnir í Hlíðunum Já já Synda krakkarnir í Sundunum? Já já Nei, ekkert barn fer oní dröfn Í sundunum við Sundahöfn Aha, sei sei, já já [Verse 4] Eru Framararnir framsettir? Nei nei Eru KR-ingar köflóttir? Nei nei Valsmenn, fundu þeir upp vals Er geimskip geymt í koti karls? Nеi nei , sei sei, já já [Verse 5] Byrjar jólahátíð klukkan sеx? Já já Er til staur sem borðar matarkex? Nei nei Jú, þekkið ekki þennan gaur Þetta er hann Stekkjastaur Aha, sei sei, já já [Verse 6] Virðist Grýla voða sæt og fríð? Nei nei Vitiði um dýr sem fylgja ykkur alla tíð? Nei nei Jú, þið eruð meiri álfarnir Það eru á ykkur kálfarnir Aha, sei sei, já já [Verse 7] Keyra allir lafhægt eins og lús? Nei nei Hefur ein mús fleiri eyru en engin mús? Nei nei Nei, því ein mús hefur eyru tvö En engin mús hún hefur sjö! Aha, sei sei, já já [Verse 8] Rennur Smáralind með lækjarnið? Nei nei Finnast mýs sem kettir líta ei við? Nei nei Jú, kisa verður varla fús Að veiða og éta tölvumús! Aha, sei sei, já já, sei sei, já já


Other LazyTown songs:
all LazyTown songs all songs from 2001