LazyTown — Aleinn um jólin

[Verse 1] Veistu hvað sagt er um menn Sem oft týna leið? Þeir sjá á jólunum ljós Veistu hvað sagt er um þann Sem oft stendur einn? Að hann á einhvern að um jólin [Chorus] Enginn mig sér Sama er mér Þó inni sé hátíð þá úti ég er Ég vil vera' í friði um jólin Því er ég einn um jólin [Verse 2] Ef það er satt Að svart verði hvítt Og kalt verði hlýtt Á jólakvöld Þá getur það gerst Að þú gætir breyst Og loks fundið frið um jólin [Chorus] Hvað er að mér? Kræfur ég er Læðist um nætur og hnupla frá þér Ég vil vera í friði' um jólin Því er ég einn um jólin [Bridge] Á torginu ríkir kyrrð og ró Eg horfi á ljósin og nýfallinn snjó Þá heyri ég hljóm Sem fyllir upp tóm Um jólin [Outro] Þekkir þú boðskapinn þann Þú elska skalt náungann Allt árið um kring Byrjaðu nú um jólin


Other LazyTown songs:
all LazyTown songs all songs from 2001