Walt Disney Records — Hér hjá þér

[TUI] Vaiana Vík frá, vík frá Vaiana mín, vittu nú Að þorpið þitt Motunui er allt sem þarf Þar dansarar æfa dans Þeir dansa við gamalt lag [ÞORPSBÚA/VILLAGERS] Hver vill fá nýtt lag? Það gamla er allt sem þarf [TUI] Þessi hefð er okkar hugsjón Og Vaiana, það þarf að gera margt Ei hrasa um taró-rót. Það er allt sem þarf Hjá okkur er öllu deilt Við hlæjum og fléttum körfur Og fiskimenn snúa heim á ný [VAIANA/MOANA] Ég þangað sný [TUI] Æ, farðu ei Vaiana, hald þig á jörðu Og fólkið þarf höfðingja og þú ert hér [TUI & SINA] Dag einn, mín mey Þú lítur í kringum þig og finnur að hamingjan er hér hjá þér [TUI] Lít á kókoshnetuna Og líttu á tréð Við notum allt af hnetunni Það er allt sem þarf [SINA] Við hnýtum netin úr trefjum Og mjólkin er mjúk og sæt Úr laufum eldinn við hefjum Og eldum þar kjötið vænt Lít á kókoshnetuna Og stofinn og lauf [TUI & SINA] Og eyjan gefur allt sem þarf [VAIANA/MOANA] Og enginn fer [TUI] Við erum hér Svo örugg í allsnægtunum Er lítum við fram á veginn Ertu hér Þú ert hjá mér Með tímanum mun þér lærast [TUI & SINA] Þú finnur hamingjuna hér hjá þér [TALA] Ég elska að dansa við hafið Við öldur og útsogið Og vatnið er prakkari, ha! Það er ansi óhlýðið Og fólkinu finnst ég galin Að slæmt sé það afspurnar Er lærirðu hvað þér líkar vertu þar Þú ert þíns föður dóttir Til skylduverka kvödd Tak mið af því en samt mundu þú átt þína innri rödd Og ef sú rödd fer að hvísla Um stjörnu sem lýsir skært Vaiana, sú rödd hún er sú sem þú ert [MENN/MEN] Við hnýtum netin úr trefjum Og inn í er mjólkin sæt (Og mjólkin er mjúk og sæt) Og sönginn í kór við tjáum (Úr laufum eldinn við hefjum) Svo getum við munna fætt (Og eldum þar kjötið vænt) [TUI] Og fólkið á okkur trúir [TUI & SINA] Já, það hefur trú Og eyjan gefur allt sem þarf [TUI] Og enginn fer [VAIANA/MOANA] Svo hér verð ég Mitt heimili, fólkið mitt hjá mér Ég hugsa um morgundaginn Erum hér Ég verð ei treg Því fólkið vísar mér veginn Horfum til framtíðar saman, hér með mér Því allir vegir þeir enda Hér með þér Þú finnur hamingjuna Hér hjá þér


Other Walt Disney Records songs:
all Walt Disney Records songs all songs from 2016