Lýsti sól stjörnustól
Stirndi' á Ránarklæði
Skemmti sér vor um ver
Vindur lék í næði
Heilög sjón, hló við Frón
Himinn, jörð og flæði
Fluttu landsins föður heillakvæði
Himinfjöll, földuð mjöll
Fránu gulli brunnu
Fram til sjár silungsár
Sungu meðan runnu
Blóm á grund, glöð í lund
Gull og silki spunnu
Meðan fuglar kváðu allt er kunnu
Blíð og fríð frelsistíð
Frægur steig á grundu
Ingólfur Arnarbur
Íturhreinn í lundu
Dísafjöld hylltu höld
Heill við kyn hans bundu
Blessist Ingólfs byggð frá þeirri stundu
Other Sveinbjrn Sveinbjrnsson songs:
all Sveinbjrn Sveinbjrnsson songs all songs from 2020