Sveinbjrn Sveinbjrnsson — Sprettur

Ég berst á fáki fráum Fram um veg Mót fjallahlíðum háum Hleypi ég Og golan kyssir kinn Á harða, harða spretti Hendist áfram klárinn minn Það er sem fjöllin fljúgi Móti mér Sem kólfur loftið kljúfi Klárinn fer Og lund mín er svo létt Eins og gæti ég gjörvallt lífið Geysað fram í einum sprett Hve fjör í æðar færist Fáknum með! Hve hjartað léttar hrærist! Hlær við geð Að finna fjörtök stinn! Þú ert mesti gæðagammur Góði Léttir, klárinn minn! Hve hátt hann lyftir hnakka Hvessir brá Og hringar hreykinn makka Horfið á! Sko, faxið flaksast til Grundin undir syngur söngva Slétt við Léttis hófaspil En læg nú sprettinn, Léttir Líttu á Við eigum brekku eftir Hún er há Nú æjum við fyrst ögn Áður söng og hófahljóði För um rjúfa fjallaþögn


Other Sveinbjrn Sveinbjrnsson songs:
all Sveinbjrn Sveinbjrnsson songs all songs from 2020